April 9, 2005

Vinkonurnar lagðar af stað

Ég var að koma af flugvellinum þar sem Hlín og Ásu var skilað í öruggar hendur Flugleiða. Ása var bara mjög spennt að vera að fara í flugvél og til Íslands. En hún kyssti mig á varirnar og nefið sem gerist ekki oft.

Þá er ekkert fyrir mig að gera annað en að byrja að þrífa bakvið eldavél og ísskáp því ég þarf svo að flytja eftir tæpa viku og nóg að gera fyrir skólann í millitíðinni.

Posted by thay0012 at 5:20 PM

April 7, 2005

Ása spennt í leikskólanum

Í dag er síðasti dagur Ásu í leikskólanum og hún er búin að vera rosalega spennt því það verður smá kveðjuveisla kl. 11 og þá ætlar hún að gefa öllum krökkunum frostpinna. Þegar ég kom heim úr skólanum í gærkvöldi hélt ég að hún væri farin að sofa. En svo heyrðist af efri hæðinni, "ég er svoooo spennt fyrir morgundaginn!"

Við Hlín verðum með í veislunni og við erum ofsalega spennt líka.

Posted by thay0012 at 9:48 AM

April 5, 2005

Ég get svo svarið það!!!

Þessi kalkúnn var að labba fram hjá glugganum hjá okkur!

IMG_0914.jpg
IMG_0915.jpg

Posted by thay0012 at 1:20 PM

April 4, 2005

Siðasta vikan

Jæja, nú er síðasta vika Hlínar og Ásu í landinu helga! Það hefur komið í ljós að það var mjög góð hugmynd að koma fjölskyldunni í þetta húsnæði. Allir voru mjög skilningsríkir á skrifstofunni (virtust svolítið vön svona veseni með alla útlendingana sem búa á svæðinu). Ég má auðvitað ekki vera áfram í íbúðinni okkar meðan ég er bara einn. En ég má flytja í eins herbergja íbúð á föstudag í næstu viku og svo bara flytjum við aftur í tveggja herbergja þegar þar að kemur. Ekkert vesen með tryggingarfé og þess háttar, það bara gegnur á milli.

Ég held að Ása sé bara orðin mjög spennt að komast heim. Reyndar talar hún mest um það að hún ætli að gefa öllum krökkunum í "preschooler" (hún fattar ekki að hún er preschooler í preschool heldur kallar leikskólann perschooler) frostpinna síðasta daginn hennar á fimmtudaginn. Svo heimtar hún að fá að taka tvíhjólið með hjálpardekkjunum með sér heim til Íslands og ég held að það verði látið eftir henni. Kostur þess að vera í beinflugsfæri.

Posted by thay0012 at 2:12 PM

April 3, 2005

Kalt?

Ahahaha!!! Það er tíu sinnum heitara hjá okkur en á Íslandi þessa stundina!

Ása er búin að vera úti í allan dag, síðan kl. 9 í morgun. Hún er að verða frekknótt og útitekin. Bíðið bara þangað til þið sjáið hana.

Posted by thay0012 at 6:55 PM

April 1, 2005

Slæmu fréttirnar

Nú eru allir búnir að fá slæmu fréttirnar þannig að það er í lagi að ræða það hér. Maður vill helst að svoleiðis fréttir séu fluttar á persónulegri hátt en á opinberri vefsíðu. En s.s. Hlín og Ása fara aftur til Íslands laugardaginn 9. apríl. Við eigum eftir að komast að því hvað verður um íbúðina o.þ.h. Það getur vel verið að við getum haldið henni því það eru svo margar auðar íbúðir hérna. Hins vegar þarf maður aðeins að hugsa um hvað sé mikið vit í að borga leigu fyrir svo stóra íbúð fyrir einn mann næsta hálfa árið. Skynsamlegt fólk myndi nota tækifærið og reyna að spara. En svo er líka það að þetta lendir allt á leiðinlegum tíma þar sem ég er á fullu í ritgerðum og lokaverkefnum og hef því takmarkaðan tíma og áhuga á að sinna flutningum. En við sjáum til hvað gerist.

es Það er gaman að sjá hvað fólk er að verða duglegt að hafa samskipti hérna á vefnum.

Posted by thay0012 at 1:01 PM

March 28, 2005

Síðasti dagur Þóreyjar

Þórey er á heimleið seinni partinn í dag. Meðan hún er í lokaverslunarferð er verið að undirbúa DVD diska til að senda heim með myndasyrpum af Ásu aðallega. Ása fékk að horfa á þetta áðan og sat fyrir framan tölvuna með væmið bros meðan hún horfði á sjálfa sig og sagði "Æ hvað ég er nú falleg."

Vinkonan er ofsalega ánægð með veðrið. Í dag á hitinn að fara upp fyrir 15 stig og hún er strax komin út á stuttermabol!

Posted by thay0012 at 11:48 AM

March 27, 2005

Páskar!!!

Það hefur tekist að byggja upp góða spennu fyrir páskana. Í gær lituðum við fullt af eggjum og ætlum að fela þau í dag og Ása leitar. Hún hefur aldrei verið neitt sérlega góð að finna hluti. Getur leitað í marga daga af dúkku sinni sem situr á borðstofu borðinu! En það er komið plan - að Ása leitar og við segjum henni þegar hún er köld eða heit. Hún er ofsalega spennt.

Þórey fer aftur heim á morgun. Ég nefndi það við Ásu í gær og hún var ekki hrifinn. Hún skilur ekki af hverju Þórey getur ekki bara átt heima í Ameríku líka.

Við lentum í smávandræðum í gær. Þegar ég ætlaði að fara að sjóða egg kom í ljós að pottarnir okkar tveir voru fastir saman. Þeir höfðu verið staflaðir og einhvern vegin festst þannig að það var ekki fræðilegur möguleiki að ná þeim í sundur. Ég var kominn með þá út og var þá að hugsa að ég gæti alla vega bjargað öðrum og var að berja þá í staur en ekkert gekk. Það endaði á því að við Hlín þurftum að skjótast í Ikea og kaupa nýja potta. Svo fórum við í páskakaffi til Magga og Sólveigar og þær vinkonurnar léku sér mikið saman. Þetta var mjög íslenskt allt saman.

Vorið virðist loksins komið. Það er enn smá snjór á jörðu þar sem skuggi er enn í dag á að bjóða okkur upp á 12 stig og á þriðjudag er meira að segja verið að spá þrumu- og eldingaveður! Ég veit ekki hvernig Ása á eftir að taka því...

Posted by thay0012 at 8:34 AM

March 22, 2005

Vorið að koma?

Nú virðist loksins vera að koma vor! Hitinn er ekki mikill ennþá en samkvæmt fréttum á að fara að aukast næstu daga. Ef spár rætast verður hitinn almennt kominn í kringum 10 stig í næstu viku. Ykkur finnst það ekki mikið en miðað við það sem hefur verið finnst okkur það frábært!

Þórey átti afmæli í gær og í tilefni af því bökuðu mæðgurnar súkkulaði köku. Svo ætlar Þórey að bjóða öllum út að borða í kvöld og er búið að ákveða að fara á Nye's Polonaise Room. Það er ekki hægt að koma til Mpls og fara ekki á Nye's!

Þórey passaði síðasta laugardag og við Hlín fengum að fara út á lífið saman í fyrsta sinn. Ég ákvað að veita Hlín sýnishorn af þeirri borg sem ég þekki frá fornri tíð. Það var fyrst farið á CCClub í borgara og bjór. Hlín var svolítið hissa þegar ég gat bent á eina stúlku sem ég sá þar sem ég þekkti í gamla daga. Það breytist fátt á CCClub. Svo var labbað á Uptown Bar & Grill í þeirri von að þar myndi vera áhugaverð tónlist. Svo var ekki þannig að eftir einn svalandi bjór var farið með strætó niðrí bæ og á Nye's. Pólka hljómsveitin var í miklu stuði en við dönsuðum ekki. Við þurfum að æfa okkur svolítið fyrst.

Posted by thay0012 at 4:16 PM

March 18, 2005

Þórey frænka er komin!

Þórey frænka mætti í kvöld. Ása var við dyrnar með íslenska fánann sinn og pabbi var svolítið hissa þegar Þórey kom með engan farangur!?! Kom í ljós að einhver starfsmaður flugvallarins hafði platað Þórey til að setja töskur sínar á eitthvað færiband sem reyndist svo vera "Transit" færiband, þ.e.a.s. fyrir þá sem voru að fljúga áfram frá Mpls. Við fórum svo í biðröð þar sem var sagt að málinu yrði reddað. Þar var mikið uppnám. Einhver fjölskylda sem hafði tékkað sig inn og svo hætt við ferðina var ósátt við að geta ekki fengið töskurnar sínar. Það var mikið grátið. Svo voru táningssystur í biðröðinni sem allt í einu fóru að slást! Mikið stuð. Það tókst á endanum að fá aðra tösku Þóreyjar en hin var ekki merkt áfangastað því það var handfarangurinn. Við förum aftur á morgun og reynum að koma öllu í lag. En Ásu þykir alla vega mikið stuð að fá Þóreyju frænku í heimsókn.

Við vonum svo bara að Þórey hafi komið með vetrarfötin því hér hefur snjóað í allan dag og orðið ansi vetrarlegt hér á ný. Þetta daginn eftir að ég sagði við Hlín að nú færi að vora!

Posted by thay0012 at 8:51 PM